Saturday, April 29, 2006

5 plötur sem kalla fram líkamleg áhrif hjá mér

The Streets – A Grand dont come for free
Önnur plata The Streets (Mike Skinner) frá Birmingham á Englandi. Textalega séð er þetta ein besta poppplata allra tíma.. Þemaplata sem fjallar um Mike, kærustuna hans og 1000 pund sem týnast, þó að sagan sé kannski ekki merkileg í sjálfu sér nær hann snilldarlega að láta lögin passa fullkomlega saman og nær hápunkti í lokalaginu Empty Cans. Ég fæ hreinlega í magann yfir snilldinni, ótrúlegt hvernig sýn sögumannsins á heiminn breytist í miðju laginu. Ég er viss um að ef Mike Skinner hefði verið fæddur á 16.öld værum við að lesa ljóðin hans í skólanum. Mike á sér einhvern veginn engan samastað í tónlistarskilgreiningum, hann er einhverskonar blanda af hip-hoppi, garage og ýmsum gerðum af raftónlist. Mike er mjög sérstakur rappari, reynir hvorki að vera svartur né bandarískur og hefur því eiginlega ekki verið samþykktur af hip-hoppurum.


The Shins – Oh, Inverted World
Magnaðasta indí-poppplata árþúsundarins er að mínu mati Oh, Inverted World með The Shins frá Albuquerque í New Mexico fylki. Sveitin byrjaði sem hliðarverkefni gítarleikarans/ söngvarans James Mercer. Oh, Inverted World sem kom út árið 2001 var þeirra fyrsta breiðskífa og fékk frábærar viðtökur. Platan er mjög hress en um leið einlæg og mæli ég sérstaklega með hinni svona í byrjun sumars. Þegar ég hlusta á hana fæ ég fiðrildi í magann, svolítið eins og að vera ástfanginn, kannski er ég bara ástfanginn af glaðlegum melódíunum og skemmtilega hárri röddu James Mercers. Árið 2003 kom síðan út Chutes too Narrow, sem er frábær en erfitt var að fylgja þessi meistaraverki eftir. Margir kannast við hljómsveitinu úr myndinn Garden State með Scrubs gaurnum en þar segir Natalie Portman að New Slang (með The Shins) muni breyta lífi Scrubs gaursins. Ég veit ekki hvort það hafi breytt lífi hans, en ég fæ að minnsta kosti í magann.
Þar sem ég er svo örlátur ætla ég að gefa ykkur alla plötuna, Til Hamingju!
http://split.org/random/Oh,%20Inverted%20World/







Graveslime – Roughness & Toughness
Ein ótrúlegasta íslenska rokkplata sem gefin hefur verið út, lýsingar eins og ,,þyngri en pláneta” lýsa henni vel. Stíllinn minnir stundum svolítið á Nirvana, The Melvins og The Fucking Champs. Þungt gruggrokk með gítarsólóum sem láta mann standa upp og spila á það sem hendi er næst, og ég er ekki aðdáandi gítarsólóa, nei, nei, venjulega eru þau leiðinleg, en ekki hjá Graveslime. Þeir gáfu aðeins þessa einu plötu með sveitin lifði. Hún var tekin upp af Tim Green (nei ekki Tom Green, þó það hefði verið skemmtilegt) úr The Fucking Champs og sagði hann um þá “…and they were always drunk and naked”. Umslag og öll hönnun disksins er líklega sú besta í sögu íslenskrar plötuútgáfu. Inniheldur platan 10 frumsamin lög með nöfnum eins og The punch fucking drunk fuck and the fucking goat og svo er þar einnig frábær útgáfa af Chariots of Fire eftir Vangelis. Sveitin lagði upp laupana 2002 en sagan segir að söngvarinn hafi misst heyrnina á tónleikum á menningarnótt, en fyrr um daginn höfðu þeir spilað tvö gigg. Sjónarvottur sagði að blætt hefði úr eyrunum á honum en hann hefði bara hrist hausinn og haldið áfram að öskra úr sér lungun og spila brjáluð gítarsóló. Það kalla ég Rokk og Ról. Meðlimir sveitarinnar eru nú m.a. í Retron og Skátum.


Nú er ég orðinn þreyttur og nenni ekki að skrifa meira en hér eru síðustu tvær plöturnar. Ég efast ekki um að ég muni skrifa um þær seinna enda algjör meistaraverk.

Bright Eyes – I´m wide awake it´s morning


Elliott Smith – XO


Til gamans má einnig geta að 3/5 af þessum plötum kynntist ég upphaflega á Borgarbókasafninu Tryggvagöti, Bókasöfn rúla.Ég yrði einnig mjög ánægður ef þið skrifuðuð plötur sem gefa ykkur fiðring í magann, láta ykkur missa þvag eða gráta.

Labels: , , , , , , ,

Thursday, April 20, 2006

10 sumarlög

Sumarið virðist vera að koma svo að ég hef ákveðið að setja hérna sumarlagalista öllum til mikillar ánægju. Endilega bætið við fleiri sumarlögum.

Adam Green - Crackhouse Blues
Þetta lag fjallar nú ekki um sumarið en kemur manni alltaf í gott skap. Tekið af plötunni Gemstones

Eels - Goddam Right it's a Beutiful Day
Einstaklega hresst lag með einsmannsbandinu (fyrrv. tríóinu) Eels. Ég veit ekkert af hvaða plötu þetta er. Held að þetta hafi verið í Shrek myndinni eða eitthvað.

http://www.geocities.com/kristjangud1/GoddamRightItsABeautifulDay.mp3

Bertel - Sunshine & Lollipops
klárlega besta synthesiser-strokes-sumar-lag í heimi með myndarlegustu íslensku hljómsveit í heimi, fjallar um sólskin og sleikipinna. Plata er vonandi væntanleg frá Bertel. Hægt er að nálgast lagið á www.myspace.com/Bertel

Weezer - Island in the Sun
Eitt fyrsta lagið sem ég lærði á gítar Em-Am-D-G. Þetta lag má finna á Grænu Plötu Weezer sem er mjög sumarleg í heild sinni.
http://www.jaemani.com/weezer/weezer-islandinthesun.mp3

Ramones - California Sun
Tyggjókúlu-pönk bandið The Ramones í essinu sínu, þrjú grip og grípandi melódía.

The Beatles - Good Day Sunshine
Þetta hressa McCartney lag er tekið af Revolver sem af mörgum eru talin besta bítlaplatan, uppfull af slögurum, þessi er samt sumarlegastur.

Kimya Dawson - Parade
Skrúðgöngur eru víst mjög sumarlegar og fjallar þetta lag um eina svoleiðis. Þetta lag er af næstnýjustu plötu Kimyu, Hidden Vagenda, mæli með henni. Hægt er að nálgast þetta lag á www.kimyadawson.com í mjög skemmtilegri live útgáfa

The Libertines - Vertigo
Pétur og Saurlífsseggirnir eru eiginlega bara skemmtilegir á sumrin, varð ástfanginn af þessari plötu (Up the Bracket) við fyrstu hlustun.

Belle & Sebastian - Summer Wasting
Breskt sumarpopp-band, þetta hressa lag er tekið af plötunni The Boy with the Arab-strap sem getur reyndar ekki talist þeirra besta.

The Fall - New Face in Hell
Mjög líklega skrýtnasta pönk-band sem komið hefur fram, stjórnað af ofvirka einvaldinm Mark E. Smith. Tekið af þeirra frægustu plötu Grotesque. Eins og mörg merkileg bönd eru þau upprunalega frá Manchester.



opið bréf til blog.central.is

Ég læt ekki kúga mig.

kveðja,
Kristján Guðjónsson

p.s. fávitar
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com