Sunday, January 21, 2007

Slægur fer gaur með gígju

er nafnið á útvarpsþætti frá árinu 1989 þar sem Megas fjallar um ævi og störf Bob Dylan's.
Þættirnir eru á Sunnudagskvöldum á Rás 2 en einnig hægt að hlusta á netinu, mæli með þessu...
HLUSTA

Labels: , , ,

Michelle Shocked og Hipp-Hopp

Núna hef ég komið mér upp svæði hjá moggablogginu blog.is og þar get ég sett inn lög í sérstakan tónlistarspilara. Ég mun ennþá blogga hér að minnsta kosti til að byrja með, en spilarinn verður á hinni síðunni. Það væri sniðugt ef þið eruð að lesa bloggið að opna http://kristjangud.blog.is í öðrum glugga og hlusta um leið. Ég veit að þetta er svolítið vesen en mun vera svona til að byrja með, ef ég finn ekki betri lausn mun ég líklega færa síðuna alveg á blog.is.
---------------------------------------------------

Fór í skífuna í vikunni og skipti þessum disk…













…fyrir þennan…














Ég myndi segja að það hafi verið góð skipti.

The Texas Campfire Takes með Michelle Shocked var tekinn upp árið 1986 á þjóðlagahátíðinni í Kerrville í Texas. Aðdragandinn að upptökunni var að Michelle (fædd Karen Michelle Johnson árið 1962) ætlaði að taka þátt í lagasmíðakeppni hátíðarinnar. Þeir sem vildu taka þátt og vildu fá að spila þurftu að senda inn demo-upptöku en demó-ið hennar Michelle týndist í pósti og var því ekki pláss fyrir hana í dagskránni. Pete Lawrence annar eigenda breska útgáfufyrirtækisins Cooking Vinyl var á hátíðinni og heyrði hana spila á fiðlu og spurði hvort hann mætti taka upp plötu með henni. Pete og Michelle settust saman við varðeld í jaðri hátíðarsvæðisins og tóku upp plötu á Sony Walkman (vasadiskótæki) sem Pete var með. Í bakgrunni heyrist í varðeldinum, kakkalökkum og bílum að keyra framhjá. Öll útgáfan var mjög viðvaningsleg, lög hétu vitlausum nöfnum, upptökubúnaðurinn breytti hraða sumra laganna. Talandi um Lo-Fi, ennþá engar hugmyndir að íslensku nafni á Lo-Fi tónlist? Hvernig finnst ykkur Lé-Tæ (Léleg tækni)?
En allir þessir gallar gerðu í rauninni plötuna enn meira heillandi og lögin standa fyrir sínu. Lögin eru hreinræktuð amerísk þjóðlagatónlist þar sem stefnum og stílum er hrært saman og eykur það einnig áhrifamáttinn að lögin séu flutt af alþýðukonu með kassagítar sem hefur átt heldur betur stormasama ævi. Michelle er frá Gilmer í Austur-Texas og áhrifavaldar hennar eru flestir af því svæði, blökkumenn sem syngja suðurríkjablús og sveitalúðar sem syngja kántrí-tónlist. Michelle var yngst 8 systkina úr heittrúaðri mormónafjölskyldu, 16 ára flutti hún að heiman enda hafði hún róttækar skoðanir sem voru ekki vel liðnar á íhaldssömu heimilinu. Ekki löngu seinna var hún greind paranoid schizophrenia og sett inn á geðsjúkrahús. Meðal annars gekkst hún undir svokallaða Shock treatment og gæti verið að eftirnafnið Shocked sé komið frá því, en heimildum ber ekki saman um það. Hún kláraði háskóla og eftir það ferðaðist hún um allan heim í nokkur ár og bjó m.a. í Barcelona, Mílanó, London og Amsterdam. Ævintýraförin endaði með hryllingi í bænum Comiso í Ítalíu þar sem Michelle var nauðgað.- Eftir þetta hefur hún barist kröftuglega með ýmsum samtökum gegn nauðgunum, klámi og misrétti.
Árin eftir Texas-varðeldatökurnar gaf Michelle út nokkrar plötur hjá Mercury/Polygram og Cooking Vinyl. Árið 1993 skráði hún sig síðan á blöð sögunnar þegar hún kærði útgáfufyrirtækið Mercury/ Polygram fyrir að hneppa sig í þrældóm enda höfðu eigendurnir neitað að gefa efnið hennar út og einnig bannað henni að ræða við önnur útgáfufyrirtæki. Dómssátt náðist og fékk hún samningnum rift. Seinna stofnaði hún síðan sína eigin útgáfu, Mighty Sound.
Heimasíðu Michelle: www.michelleshocked.com
Hlustið á 4 lög af Texas Campfire Takes á http://kristjangud.blog.is
---------------------------------------------------

Og víst við erum í róttæklingum ætla ég að leyfa ykkur að heyra í íslensku Hipp-Hopp sveitinni Forgotten Lores sem ég hef verið að hlusta á undanfarið, alveg frábært band þar á ferð. Ég hef reyndar ekki heyrt nýju plötuna, Frá Heimsenda (sem á víst að vera mögnuð), en þessi lög eru af Týnda hlekknum frá 2003. Alltaf gaman að heyra gott Hipp-Hopp á íslensku þar sem fjallað er um alvöru hluti. Njótið vel!
Heimasíða FL: www.forgottenlores.com
Hlustið á 2 lög með Forgotten Lores á http://kristjangud.blog.is

Labels: , , , , ,

Wednesday, December 27, 2006

Jóhanna

Undanfarið hefur nafnið Jóhanna hljómað í eyrum mér undarlega oft. Ég ákvað að skoða málið nánar og segja ykkur frá Jóhönnunum mínum.

Joanna Newsom – Emily

Lagið Emily með bandarísku söng- og hörpuleikkonunni Jóhönnu Newsom er hreint út sagt stórkostlegt. Það er á nýrri plötu Jóhönnu sem nefnist Y´s og hefur fengið óaðfinnanlega dóma víðast hvar og er uppseld í allri Evrópu sem og í Ameríku (og kemur því ekki til Íslands fyrr en eftir áramót). Platan inniheldur 5 lög sem eru öll örlítið lengri en venjuleg þriggja mínútna popplög (Emily er rúmar 12 mínútur). Ég hef ekki heyrt fleiri lög af nýja gripnum, þó að þau séu eflaust fáanleg ólöglega á netinu. Ég vil nefnilega ekki eyðileggja upplifunina sem fyrsta hlustun verður vonandi (kannski er ég farinn að hafa of miklar væntingar). Mörg virt nöfn úr (jaðar)tónlistarheiminum koma að gerð plötunnar, má þar nefna að strengjaútsetningar voru í höndum Van Dyke Parks sem þekktastur er fyrir samstarf sitt við hinn snargeðveika Brian Wilson úr Beach Boys (Smile platan). Steve Albini sá um upptökustjórn en hann hefur áður unnið með Nirvana (In Utero), PJ Harvey, Ensími og fleiri snillingum. Síðast en ekki síst sá Jim O’Rourke (fyrrverandi meðlimur Sonic Youth) um lokavinnslu plötunnar. Lagið Emily heyrði ég fyrst á tónleikum Jóhönnu í Fríkirkjunni og vakti það strax athygli mína og var eina nýja lagið sem ég man greinilega eftir af þeim mögnðu tónleikum. Upphitun á tónleikunum var í höndum Bills nokkurs Callahans, sem oft kallar sig Smog (eða (Smog)) og er hann einmitt kærasti Jóhönnu. Umslagið af Y´s virðist vera mjög glæsilegt og unnið í sama stíl og 16.aldar meistararnir máluðu. Myndin er í miðalda-stíl og finnst mér það passa vel við tónlistina hennar og finnst mér einhvers konar miðalda stemmning í nokkrum lögum af fyrri plötunni The Milk-Eyed Mender og þá sérstaklega í Peach, Plum, Pear. Er ekki alveg viss hvaða hljóðfæri er leikið á og skapar þannig þessa stemmningu, netið segir mér að það sé rafmagns-harpa. Einnig heyrir maður áhrifin frá ýmis konar þjóðlagatónlist m.a. amerískri fjallatónlist. Hér getið þið hlustað á Emily; Peach, Plum, Pear og svo séð myndbandið við Sprout and the Bean







Bob Dylan – Visions of Johanna
Það er ekki ýkja langt síðan ég hlustaði í fyrsta skipti á ,,Blonde on Blonde” með Bob Dylan. Málið er að ég ætla að fara í gegnum allan feril Dylans í réttri röð. Ég held að hann hafi gefið út u.þ.b. 30 stúdíóplötur en einnig mikið magn af tónleika og bootleg-plötum. Fyrstu þrjár plöturnar (1962-4) eru fáránlega góðar en næstu þrjár (1964-5) ekki alveg jafn fáránlega góðar. Nú hélt ég kannski að leiðin lægi aðeins niður á við en Ljóska á ljósku sem kom út árið 1966 er í augnablikinu mín uppáhalds plata af þessum 7 (A.T.H í augnablikinu). Eftir að Bobby hætti að einbeita sér að pólitískum söngvum fór hann yfir í mun persónulegri sálma en náði ekki að fullkomna þá list fyrr en á Ljósku-plötunni. Lögin eru hvert öðru magnaðra og finnst mér Visions of Johanna þó bera naumlega af. Eins og venulega vill Dylan ekkert segja um hvað lagið er, en margir eru á þeirri skoðun að það fjalli um sambandsslit hans og fólk-söngkonunnar Joan Baez (þó að öðrum þyki ólíklegt að hann hafi samið svo fallegt lag um konu sem fór eiginlega í taugarnar á honum). Önnur kenning er að Jóhanna sé komin af Gehanna = Ge-Hinnom sem er víst hebreska og táknar lífið eftir dauðann. Textinn sem virðist í fyrstu vera ljóðrænt kjaftæði er ótrúlega margslunginn og magnaður. Í senn þjóðfélagsgagnrýni, dópað ástarljóð, sjálfsádeila og margt fleira. Þess vegna hefur lagið verið uppáhald margra Dylan-fræðinga sem geta endalaust brotið heilann um merkingu Jóhönnu. Hin meinta fyrirmynd Jóhönnu; Joan Baez er alveg handviss um að Bobby sé að syngja um hana, reyndar hefur hún haldið því fram að mörg laga hans fjalli um hana (sem er harla ólíklegt).

Hér má heyra lagið sjálft og hér á að vera hægt að sækja allan Blonde on Blonde diskinn. Að lokum fann ég stutt myndskeið frá árinu 1963 þar sem Dylan og Jóhanna Baez syngja saman annað af mínum uppáhaldslögum Dylans, When the Ship Comes In af The times they are a-changin'.



Serge Gainsbourg – Joanna
Franski pervertinn, tónlistarmaðurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Serge Gainsbourg (fæddur Lucien Ginzburg) er hérna með lag um Jóhönnu. Ef einvher sem les þetta kann frönsku má sá hinn sami endilega þýða textann fyrir mig. Eina sem ég veit er að hann fjallar um Jóhönnu sem dansar, spennandi! Hver þessi Jóhanna er og af hverju hún er að dansa í New Orleans og Lousiana veit ég ekki en væri mjög þakklátur ef einhver gæti sagt mér það. Lagið kom út á breiðskífunni Colour Cafè árið 1975. Serge fæddist árið 1928 og var kominn af rússneskum gyðingum sem flúðu frá heimalandinu til Frakklands. Seinna gerði hann mikið grín af uppruna sínum, nasistum og mörgu fleiru sem þótti tabú. Serge vakti fyrst athygli þegar að lagasmíð hans Poupée de cire, poupée de son sigraði söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (Eurovision) en lagið var flutt af France Gall sem keppti fyrir hönd Lúxemborgar. En það var árið 1969 sem hann varð heimsþekktur þegar hann tók upp lagið Je t'aime... moi non plus (Ég elska þig...ekki ég heldur) með kærustunni sinni Jane Birkin. Lagið þótti einstaklega dónalegt enda heyrast samfarastunur allt lagið (sögusagnir herma að þær séu ósviknar). Lagið var bannað í fjölmörgum löndum, þar á meðal Íslandi og Bretlandi, en var einnig fordæmt af páfa. Karlinn prófaði sig áfram í nánast öllum mögulegum stefnum tónlistar og hefur skapað sér sess sem einn merkasti tónlistarmaður og textasmiður Frakklands. Serge Gainsbourg lést úr hjartaáfalli árið 1991, þá 63 ára (fyrir þá sem kunna ekki að reikna). Ekki tókst mér að finna lagið á alnetinu og ég kann ekki að setja lög sjálfur inn svo að ég ætla að leyfa ykkur að heyra lagið Je t'aime... moi non plus og einnig stórborganlega (stórkostlega + óborganlega) fyndna upptöku frá 1986 þar sem Gainsbourg og ung og efnileg söngkona að nafni Whitney Houston hittast í spjallþætti (sem sýndur er beint).




Dæmi um fleiri Jóhönnur:

Sungið er um Joan of Arc (Jóhönnu af Örk) í Bigmouth Strikes Again með meisturunum í The Smiths
Joan of Arc er einnig viðfangsefnið í samnefndu lagi Leonards Cohens
Joan er fyrsta fórnarlamb Maxwells Edisons og silfurhamars hans í einu misheppnaðasta lagi Bítlanna Maxwell´s Silver Hammer.
Joan Baez er bandarísk alþýðusöngkona með undarlega en magnaða rödd
Joan Jett sem elskar rokk og ról (I love Rock´n´Roll)
Joan Osbourne sem syngur What if God was one of us.

Endilega bætið við fleiri Jóhönnum í athugasemdirnar.

Labels: , , , , ,

Saturday, May 27, 2006

5 spurningar ?

Innvortis – Hvað er þetta helvítis eitthvað?
http://www.rokk.is/mp3/innvortis/innvortis_hvad_er_thetta_helvitis_eitthvad.mp3

Hressasta pönkhljómsveit íslands spyr hvað þetta helvítis eitthvað er. Ég hef heldur ekki hugmynd um það. Hljómsveitin var stofnuð 1996 á Húsavík og eru þeir því elsta starfandi pönkhljómsveit Íslands (fyrir utan Fræbblana, sem enginn heilvita maður nennir að hlusta á). Þrátt fyrir að vera 10 ára og mjög duglegir að spila á tónleikum hafa þeir aðeins gefið út eina plötu Kemur & fer og EP-plötuna Andrea sem umrætt lag er einmitt á. Tónleika Innvortis á Kaffi Hljómalind má nálgast hér fyrir neðan (ég er ekki frá því að ég hafi verið einhvers staðar aftast á þessum tónleikum).
http://notendur.centrum.is/~drastl/vídeo%20-%20dordingull/Gussi/INNVORTIS-HLJ





Furstaskyttan – Hvorfor går solen ikke ned (?)
http://www.rokk.is/mp3/f/furstaskyttan_hvorfor_gar_solen_ikke_ned.mp3

Furstaskyttan komst í úrslit músiktilrauna í ár og spyr hvers vegna sólin fer ekki niður (þessu svara The Flaming Lips í næsta lagi). Lagið er (eins og nafnið gefur til kynna) á hinu hljómfagra og yndislega tungumáli dönsku. Samkvæmt hljómsveitinni sjálfri fjallar lagið um: Pål, sem situr mæddur við gluggann sinn og hugsar um konuna sem hann elskar, Lene. Skyndilega kemur til hans bréfdúfa og skilaboðin eru frá Lene: ,,Kæri Pål. Ef þú elskar mig virkilega skaltu hringja í mig þegar sólin sest." Pål upphefst og æpir af fögnuði ... en þrándur er í götu. Pål er á Íslandi, það er hásumar og sólin sest ekki. Þegar Pål áttar sig á þessari staðreynd syngur hann viðlagið [http://www.rokk.is/spjall/topic.asp?TOPIC_ID=7820].
Ég geri ráð fyrir að það eigi að vera spurningarmerki þarna aftast í nafni lagsins.







The Flaming Lips – Do you realize??
http://homepages.wmich.edu/~m1koets/music%20for%20meg/09%20-%20Do%20You%20Realize%20%20.mp3
The Flaming Lips eru frá Oklahoma-borg í samnefndu fylki. Hljómsveitin var stofnuð 1983 eftir að meðlimirnir fengu ógeð á því að syngjs söngleikjalög og hefur sveitin síðan þá gefið út 12 plötur og ýmslegt fleira. Þeir eru ein áhrifamesta og virtasta indí-popp hljómsveit Bandaríkjanna og eru í raun skilgreiningin á indí-poppi. Do you realize?? kom út árið 2002 á 11. plötu þeirra Yoshimi Battles the Pink Robots sem er stórskemmtileg. Reyndar heyrði ég þetta fyrst á EP-plötunni Ego Tripping at the Gates of Hell þar sem það er remixað (endurhljóðblandað?) af T.P.S sem ég hef ekki hugmynd um hver er.. en það skiptir ekki máli. Í viðlaginu spyrja Eld-tungurnar ,, Do You Realize - that everyone you know Someday will die” sem ég vona að allir geri sér grein fyrir. Einnig kemur fram svar við spurningu Furstaskyttunnar hví sólin setjist ekki, The Flaming Lips segja ,,You realize the sun doesn't go down. It's just an illusion caused by the world spinning round”Þar höfum við það!






Johnny Poo – Hvar er Guðmundur?http://www.rokk.is/mp3/j/johnny_poo_hvar_er_gudmundur.mp3
Johnny Poo var einu sinni tólf ára og sætur, kannski er hann kominn í mútur núna, kannski hefur hann fundið Guðmund og sest í helgan stein. Hver veit?






Leadbelly – Where did you sleep last night?
http://www.archive.org/download/Leadbelly-Where_Did_You_Sleep/Leadbelly-Where_Did_You_Sleep_Last_Night.mp3
Ég held að þetta sé gamalt bandarískt þjóðlag og hérna er það í flutningi blúsarans og þjóðlagasöngvarans Huddie Leadbetter sem var alltaf kallaður Leadbelly (Blýmagi). Hann samdi,uppgötvaði eða aðlagaði mörg fræg amerísk þjóðlög m.a. Cotton Fields sem Árni Johnsen kallar Þykkvabæjarrokk. Leadbelly hefur greinilega mikinn áhuga á að vita hvar stúlkan hans gisti í nótt og spyr aftur og aftur ,,where did you sleep last night?". Ég hef alltaf ímyndað mér að hún sé að halda framhjá honum, svo virðist sem að flestir blús-tónlistarmenn séu gífurlega óheppnir í kvennamálum því mjööög mörg blúslög fjalla um ótrúar konur. Þess má geta að Leadbelly sat í fangelsi í sjö ár fyrir morð en var sleppt eftir að hann samdi lag um ríkisstjórann Árið 1994 fluttu Nirvana Where did you sleep last night? á mTV-Unplugged plötunni sinni og er það að mínu mati hápunkturinn á ferli þeirrar merku sveitar. Íslandsvinurinn Smog spilar eiginlega óþekkjanlega útgáfu á nýjustu plötunni sinni og kallar lagið þá In the Pines.

Labels: , , , , , ,

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com